Rannsókn
Velkomin í spurningahluta rannsóknarinnar: Sjúkdómsmynd, langtímahorfur og ónæmisminni gegn SARS-CoV-2 veirunni.
Mikilvægur hluti rannsóknarinnar „Sjúkdómsmynd, langtímahorfur og ónæmisminni gegn SARS-CoV-2 veirunni” felst í því að svara rafrænum spurningalista á þessari síðu. Til þess að opna spurningalistann þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkum. Það er gert til að auka öryggi við auðkenningu þína og rannsóknarinnar. Upplýsingarnar verða síðan dulkóðaðar eins og lýst er í kynningarbréfi rannsakenda vegna rannsóknarinnar. Kynningarbréfið má nálgast hér.
Að svara spurningalistanum jafngildir samþykki fyrir þátttöku og þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem er nauðsynleg vegna rannsóknarinnar eins og nánar er lýst í kynningarbréfi rannsakenda vegna rannsóknarinnar. Með þátttöku staðfestir þú að hafa kynnt þér efni kynningarbréfsins.
Upplýsingar sem safnast með svörun á spurningalistanum og tengdar niðurstöður verða einnig notaðar í doktorsverkefni Guðrúnar Ásu Björnsdóttur, læknis og doktorsnema, sem ber yfirskriftina “Notkun klínisks stuðningskerfis (e.CDSS) við greiningu sjálfsónæmis- og gigtarsjúkdóma”. Félagið Helga Medical ehf. hefur verið stofnað um utanumhald rannsóknarverkefnisins. Guðrún er eini eigandi félagsins og eini tilgangur félagsins er að geta boðið upp á örugga innskráningu þátttakenda með rafrænum skilríkum og að vinna ópersónugreinanlegar rannsóknarniðurstöður og aðrar afleiddar niðurstöður í þágu verkefnisins hennar og við frekari rannsóknir.